25.4.2008 | 21:13
Stundum smá efi
Mér finnst unnusti minn frábær. Honum tekst stundum að láta mig hlæja svo mikið að ég á erfitt með gang það sem eftir lifir dags. Ég er alveg sannfærð um að það á eftir að vera frábært að eyða ævinni með honum. En stundum...stundum hugsa ég: nei Drottinn minn dýri, út í hvað er ég komin? Eins og þegar ég las pistillinn hans í Fréttablaðinu í dag. Hann byrjar á einhverju svona fortíðarrúnki og síðan segir hann: "Á sama tíma hef ég áhyggjur af því hvert okkar nútímasamfélag stefnir".
JÁ rólegur, drengurinn er rétt skriðinn yfir tvítugt og hann talar eins og áttræður kall! Hvernig verður hann eftir nokkra áratugi? Þegar hann er orðin fertugur? eða fimmtugur? Þegar ég fer í ísklifur ferðina mína til Kanada 2040, þarf ég þá að vera með 117 ára gæja í eftirdragi?
Sem betur fer endar pistillinn hans á jákvæðum nótum. En þarna um miðbik pistilsins rann mér kalt vatn milli skins og hörunds og í smá stund hélt ég að þetta væri allt búið.


annapala
skinkuorgel
semaspeaks
magnusmar
juliaemm
lauola
agustolafur
dofri
soley
agnar
bryndisisfold
halli
hugsadu
thorir
truno
gummisteingrims
steindorgretar
juliara
jonastryggvi
eurostar
hoskisaem
fanney
dagga
vefritid
valdisa
andris
jonniebegoode
nykratar
bjornbustolpi
margretsverris
konur
kollaogjosep
hnefill
panama
gunna
arnih
tryggur
ugla
bjarney
skessa
sasudurnesjum
svenni
jenssigurdsson
vga
ingo
halldorbaldursson
kolgrima
vefarinnmikli
poppoli
olafurfa
gudrunjj
hlynurh
helgatryggva
tommi
id
villithor
bleikaeldingin
mp3
photo
osp
evropa
matti-matt
svavars
tru
siggikaiser
sverdkottur
gudrunarbirnu
valsarinn
malacai
gilsneggerz
iador
steinibriem
kallimatt
toddi
ver-mordingjar
gbo
harpao
sveinbjornp
perlaoghvolparnir






Athugasemdir
ég er farin að halda að hann sé eitthvað að leika sér að þér. ég meina, þú ert í stöðugum geðsveiflum yfir framkomu hans. þúst, kannski ertu á rangri braut með því að heitbindast manni sem er greinilega mjög biturt ungskáld.
þannig að ef hann fer ekki að sýna þér og nútímasamfélaginu virðingu þá gæti ég þurft að dangla aðeins í hann fyrir þig. ég meina, ekki geriru það sjálf. nei, þú ert bara heima hjá þér að drekka pripps á meðan þú heldur þér í gólfið.
Helga Þórey (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 11:51
Nohh og bara aftur í tv í dag, nú á stöð tvö. 15sekúndurnar þínar hafa orðið af hálfri mínútu yfir nótt.
Annars hvet ég þig til að hlusta á Helgu, held hún hafi rétt fyrir sig. Hún hefur líka reynslu af svona long-distance hjónabandi ef mér skjátlast ekki.
Haukur (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 13:07
ég er ótæmandi viskubrunnur
Helga Þórey (IP-tala skráð) 26.4.2008 kl. 13:23
Sem biturt ungskáld sá ég mér ekki annan kost en að eyða nóttinni á bókasafni Reykdæla og lesa Nietzsche.
Ertu annars ánægð með hringinn frá mér?
Örlygur Hnefill Örlygsson, 27.4.2008 kl. 04:25
Helga Þórey:já þetta er vægast sagt mjög tilfinningaþrungið samband. Í gærkvöldi afrekaði ég að móðgast, eyða símanúmerinu hans í farsímanum mínum, dansa við karlmann á árshátiðinni minni, fá móral, hringja í hann og það símatal endaði á því að ég kvaddi hann með tárin í augunum, segjandi honum að ég dýrkaði hann í drasl. Fór síðan niður í bæ og vorkenndi þeim gagnkynhneigðu konum enn eru á lausu því mér virðist allir menn vera hrópandi undirmálsmenn og vesalingar í samanburði við unnusta minn.
En hvernig get ég sannfært hann um ágæti nútímasamfélagsins? Er bitrum ungskáldum alls ekki viðbjargandi?
Haukur J:Var ég aftur? Þvílík snilld, ætli ég komist núna fram fyrir röð á skemmtistöðum? Og já Helga Þórey hefur nú átt menn í öllum heimsálfum þannig að hún ætti að geta leiðbeint mér
Helga Þórey: Við verðum að hittast í kaffi og fara yfir þetta mál. Kannski fæ ég betri ráð frá þér en Miriam Stoppard
Örlygur: Ef þú tekur upp á því að kalla sjálfan þig lífskúnstner þá...En hringurinn, það var svo gaman að monta sig af honum á árshátíðinni í gær.
Eva Kamilla Einarsdóttir, 27.4.2008 kl. 15:56
nú rífðu af honum gemsann og klósettpappírinn. þá sér hann mikilvægi þess sem iðnbyltingin hafði í för með sér! annars geturu bara lesið fyrir hann garðslönguljóðið. that oughta do it!
Helga Þórey (IP-tala skráð) 27.4.2008 kl. 17:05
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.